19.09 2006
Nú er loksins búið að steypa og stimpla planið okkar fyrir framan húsið, einnig er kominn pallur fyrir aftan hús! Myndir af því koma seinna!
Við byrjuðum að byggja okkur raðhús í febrúar 2004, en hugmyndin um að byggja okkur hús kviknaði fyrir nokkrum árum!! Þar sem við erum með börn og hunda þá langaði okkur í hús á jarðhæð með innbyggðum bílskúr og með góðan garð!
Á seinasta ári (2003) byrjuðum við að láta teikna fyrir okkur grunnmynd af raðhúsi, og unnum við svo út frá þeirri teikningu. Við vorum samt ekki alveg nógu sátt með húsið svo við létum arkitekt hanna og teikna húsið okkar uppá nýtt, og með smá breytingum vorum við mjög ánægð með útkomuna úr því!
Við fluttum loksins í nýja húsið okkar í endan nóvember árið 2004!!Hér er horft yfir sjónvarpsholið, inn í þvottahúsið að bílskúrsvegg!

Hér er horft inn í eldhúsið, þar fyrir innan er baðherb.2 og svo hjónaherb!

Svona lítur eldhúsið okkar út núna!

Hér er svo útihurðin okkar!

Svona lítur svo húsið út!

Við keyptum okkur nýjan sófa í janúar á þessu ári og var hann loksins að koma í apríl!!! Þvílík bið...

Nýjar myndir af Klettás 29, þar sem við erum að gera pall!!

|
|
Þessi mynd er tekin í okt í fyrsta snjónum!

