05júlí
Við erum komin með nýja heimasíðu: http://www.123.is/klettas29
Endilega að kíkja og kvitta fyrir komun í gestabókina! 
05apríl
Vildi bara óska ykkur öllum Gleðilega páska og vona að þið hafið það gott yfir hátíðarnar!!
Við förum uppí bústað til mömmu og pabba á morgun og svo þaðan norður í sveitina en við ætlum að vera þar um páskana.
20febrúar
Jæja loksins er ég búin að setja inn myndir af strákunum á sundæfingum inni í myndaalbúminu.
Einnig setti ég inn mynd af Jón Þóri þar sem hann er nýbúinn að missa fyrstu tönnina sína, rosalega flottur!!

Sú mynd er inni í albúminu "ýmsar myndir af krökkunum"
14febrúar
Ég bjó til nýja síðu undir hundana okkar og Draumalandsræktunina.Þar inni verða allar uplýsingar hundana okkar og got og annað sem er í gangi. Þetta var farið að taka svo mikið pláss hér inni!

Endilega kíkja á og skoða og ekki gleyma að kvitta í gestó!

Linkurinn:
http://www.123.is/draumalands/
07febrúar
Þar inni verður allt í sambandi við gotið og fl.
Við erum búin að ákveða að nota hann Leiru Harro á hana Fóu. Við bíðum bara eftir niðurstöðum úr DNA/PRA blóðprufunni.

Set inn fleiri upplýsingar seinna.
02febrúar
Fékk sent í pósti í dag niðurstöður úr DNA/PRA blóðprufunni og er Fóa mín Normal/Clear!! Þetta er þvílíkur léttir að vera búin að fá allt hreint úr öllum heilsuskoðunum sem hún hefur farið í

Það er svona komið nokkuð á hreint hvaða hundur verður notaður á hana, fer að skoða hann á sunnudaginn, en hann á eftir að fara í DNA/PRA blóðprufu og verðum við að bíða og sjá hvað kemur út úr því annars er hann augnskoðaur og með gilt augnvottorð og svo líka HD og AD frír. Læt ykkur vita þegar nær dregur!
29janúar
Við sóttum um ræktunarnafn hjá HRFÍ í byrjun des og var ég loksins að fá viðurkenningarskjalið með ræktunarnafninu á!! "
Draumalands" það er einnig viðurkennt hjá FCI og er það komið á heimasíðu FCI sem hægt er að sjá hér:
http://www.fci.be/affixes.asp?lang=en&l=DR
26janúar
Jæja þá eru jólin búin og allt komið í sinn vanagang. Strákarnir eru byrjaðir að æfa sund í Njarðvík og finnst það mjög gaman! Guðjón æfir 3svar í viku en Jón Þór er 2svar í viku! Þeir eru báðir hjá Ásgerði en hún er mín æskuvinkona

. Það hafa orðið mjög miklar framfarir hjá þeim báðum í sundinu! Set inn myndir í næstu viku af sundæfingunum!
Þá er ég búin að fara með Fóu í DNA/PRA blóðprufu, en það tekur um 3-6 vikur að fá niðurstöður úr þeim! Ef allt gengur upp þá ætla ég að para hana á næsta lóðaríi en það ætti að vera í mars eða apríl! Set inn upplýsingar um hundinn þegar nær dregur!

05janúar
Það eru komnar myndir af Gamlársdegi/kvöldi. Endilega kíkið!!

Munið svo að kvitta fyrir komuna í gestó 
03janúar
Við erum að fara að flytja inn hund frá USA af tegundinni Enskur setter 
Hann er komin með sína eigin síðu undir " Chester"